Haffi, Gröndal og jötnarnir 9. febrúar 2008 03:00 900-2001 Svala Björgvins - The Wiggle Wiggle Song.
Áfram heldur Eurovisionmaraþonið í Laugardagslögum Rúv. Í kvöld er komið að fjórða og síðasta undanúrslitakvöldið og að því yfirstöðnu verður loksins ljóst hvaða átta lög keppa til sigurs á stóra úrslitakvöldinu 23. febrúar. Fyrstur er Haffi Haff sem stekkur á stokk með eitursvölu aðstoðarfólki sem dansar á eggjandi hátt. Haffi, sem vakið hefur mikla athygli en enginn vissi hver var áður en keppnin byrjaði, flytur grúfhlaðið danslag Svölu Björgvins, The Wiggle Wiggle Song. Næst er Ragnheiður Gröndal sem flytur lag Margrétar Kristínar Sigurðardóttur, Fabúlu, Don‘t wake me up. Lagið stingur nokkuð í stúf við hin lögin, er einlægt og blítt, en þó dillandi og hresst og vitnar í eldri tíma tónlistarsögunnar en hin tvö. Lestina rekur snargrípandi evródiskó Barða Jóhannssonar, Ho, ho, ho, we say hey, hey, hey í flutningi Mercedes Club þar sem Ceres 4 og Rebekka Kolbeinsdóttir fara mikinn í framlínunni. Kraftajötnarnir Partí Hanz og Gilzenegger veita þó góðan stuðning bakatil, að ógleymdu heljarmenningu Gaz-man, sem vonandi hefur náð sér af meiðslum og mætir fílefldur til leiks. Gestadómari er söngkonan Guðrún Gunnarsdóttir en aðstandendur keppninnar neita að gefa upp hver er gestur kvöldsins. Láta aðeins uppi að hann borði 7500 kalóríur á dag og eigi íslandsmet sem er örskammt frá heimsmetinu í þeirri grein.
Eurovision Mest lesið Best að geta elt draumana saman Lífið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Laufey og Collab í eina sæng Lífið Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Lífið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Lífið Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Fleiri fréttir Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira