Fótbolti

Laporta biður um þolinmæði stuðningsmanna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Joan Laporta, forseti Barcelona.
Joan Laporta, forseti Barcelona. Nordic Photos / AFP

Joan Laporta, forseti Barcelona, hefur beðið stuðningsmenn liðsins um að sýna leikmönnum þolinmæði og stuðning.

Barcelona tapaði fyrir Real Madrid á heimavelli á Þorláksmessu, 1-0, og er nú sjö stigum á eftir liðinu sem er á toppi deildarinnar.

„Það er nú sem liðið þarf á stuðningi og hvatningu að halda," sagði Laporta. „Stuðningsmennirnir verða að sýna leikmönnum stuðning. Tímabilið er ekki búið og við getum náð okkur aftur á strik eftir vetrarfríið. Við vitum vel að allt hefur ekki gengið að óskum að undanförnu en við munum ná að snúa ástandinu okkur í hag."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×