Fótbolti

Eiður Smári á bekknum

Elvar Geir Magnússon skrifar
Eiður er á bekknum en Ronaldinho byrjar.
Eiður er á bekknum en Ronaldinho byrjar. Nordic Photos/Getty Images

Það er sannkallaður stórleikur í spænska boltanum í kvöld þegar Barcelona tekur á móti Real Madrid. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og er í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn.

Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í byrjunarliði Barcelona. Í hans stað kemur hinn portúgalski Deco inn á miðjuna. Ronaldinho er í sóknarlínunni ásamt þeim Andrés Iniesta og Samuel Eto´o.

Fjölmiðlar á Spáni höfðu flestir spáð því að Eiður Smári yrði í byrjunarliði Börsunga en nú er ljóst að hann þarf að byrja á bekknum.

Byrjunarlið Barcelona: Valdes; Puyol, Marquez, Milito, Abidal; Xavi, Toure, Deco; Ronaldinho, Iniesta, Eto´o.

Byrjunarlið Real Madrid: Casillas; Ramos, Pepe, Cannavaro, Heinze; Sneijder, Baptista, Diarra, Robinho; Nistelrooy, Raul.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×