Fótbolti

Eiður: Besta mögulega jólagjöfin

NordicPhotos/GettyImages

Eiður Smári Guðjohnsen segir að það yrði besta jólagjöfin sem hann gæti fengið ef hann fengi að spila í El clásico á morgun og Barcelona myndi landa sigri.

"Það var erfitt að ímynda sér þessa stöðu mála fyrir fjórum mánuðum," sagði Eiður í samtali við Mundo Deportivo, en ekki er langt síðan yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu, Txiki Bergiristain, lýsti því yfir að Eiður ætti sér enga framtíð hjá Barcelona.

Spænskir miðlar fullyrða að Eiður geti bókað að byrja inná á morgun, en Eiður er hógvær þegar hann er spurður út í leikinn. "Það vita allir að hver einasti leikmaður Barcelona gæti byrjað þennan leik. Það sem skiptir mestu máli er að við vinnum þennan leik en ef ég fæ að spila, yrði það einn af hápunktum ferilsins og besta mögulega jólagjöfin sem ég gæti fengið," sagði Eiður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×