Fótbolti

Deco: Við Ronaldinho verðum væntanlega á bekknum

NordicPhotos/GettyImages

Portúgalski miðjumaðurinn Deco hjá Barcelona segist fastlega reikna með því að hann og félagi hans Ronaldinho verði á varamannabekknum í El clásico á morgun. Einvígi Barcelona og Real Madrid í spænsku deildinni.

"Ég á ekki von á því að spila," sagði Deco og stundi í viðtali við spænska fjölmiðla í gær. "Það hefur litið þannig út síðan á æfingu á fimmtudaginn. Það er ekki alveg bókað, en það lítur út fyrir það. Ég held að það sé þannig hjá Ronaldinho líka. Svona er þetta bara, þjálfarinn ræður og þetta hefur ekkert með meiðsli að gera heldur tæknilega liðsuppstillingu. Ég verð bara að bíða eftir mínu tækifæri," sagði Deco.

Útliti er fyrir að Eiður Smári Guðjohnsen verði í byrjunarliðinu í stærsta leik ársins á Spáni, en hann verður sýndur beint á Sýn á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×