Fótbolti

Puyol: Leyfi mér ekki að hugsa um tap

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Carles Puyol og Rafael Marquez fagna marki.
Carles Puyol og Rafael Marquez fagna marki. Nordic Photos / AFP

Carlos Puyol ætlar að einbeita sér að jákvæðu hugarfari fyrir stórslag Barcelona og Real Madrid á sunnudaginn.

Fyrirliði Börsunga leyfir sér ekki að hugsa um að tapa leiknum í eina sekúndu. „Við munum mæta liði sem er mjög skilvirkt í sínum leik. Þeir þurfa ekki nema nokkur færi til að skora mark. Hverjir eru lykilmenn þeirra? Við berum virðingu fyrir þeim öllum. Þeir eru allir mikilvægir."

Hann viðurkenndi þó að það væri enginn heimsendir falinn í því að tapa leiknum. „Það væri hættulegt en það er samt en mikið af leikjum eftir á tímabilinu."

Puyol gaf í skyn að Samuel Eto'o gæti verið lykilmaður Börsunga í leiknum. „Hann er einn besti framherjinn í heiminum," sagði Puyol.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×