Handbolti

Fram aftur á toppinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eva Hrund Harðardóttir reynir að stöðva Rut Jónsdóttur HK-ing í leiknum í dag.
Eva Hrund Harðardóttir reynir að stöðva Rut Jónsdóttur HK-ing í leiknum í dag. Mynd/Daníel

Tveimur leikjum er lokið í N1-deild kvenna í dag en Fram vann góðan sigur á HK eftir að hafa verið undir lengst af í leiknum.

Hk hafði yfir í hálfleik, 13-10, en það var ekki fyrr en undir lok leiksins að Fram skoraði þrjú mörk í röð og komst þannig í eins marks forystu, 25-24.

Fram vann svo tveggja marka sigur, 27-25. Stella Sigurðardóttir skoraði níu mörk fyrir Fram og var markahæst en fimm markanna komu af vítalínunni.

Hjá HK skoraði Anna Sif Pálsdóttir fjögur mörk, þar af fjögur af vítalínunni.

Fram endurheimti þar með toppsætið í deildinni og hefur nú eins stigs forystu á Val. HK er enn í næstneðsta sætinu með fimm stig.

Í hinum leiknum unnu Haukar sigur á Akureyri, 39-22. Eins og gefur til kynna var sigur Hauka afar öruggur en staðan í hálfleik var 21-11 fyrir heimamenn.

Erna Þráinsdóttir skoraði níu mörk fyrir Hauka en markahæstar hjá Akureyri voru Auður Ómarsdóttir og Inga Dís Sigurðardóttir með fjögur mörk hvor.

Bryndís Jónsdóttir varði ellefu skot í marki Hauka og Laima Milauskaite sex. Hjá Akureyri varði Emilía D. Sigmarsdóttir sex skot.

Mörk Hauka: Erna Þráinsdóttir 9, Hind Hannesdóttir 7, Nína Kristín Björnsdóttir 6, Fanney Dögg Barkardóttir 5, Harpa Melsted 3, Ramune Pekarskyte 2, Sigrún Brynólfsdóttir 2, Inga Fríða Tryggvadóttir 2, Ausra Geciene 1, Erna Halldórsdóttir 1 og Sandra Stojkovic 1.

Mörk Akureyrar: Auður Ómarsdóttir 4, Inga Dís Sigurðardóttir 4, Anna Morales 3, Harpa Baldursdóttir 2, Unnur Ómarsdóttir 2, Kara Rún Árnadóttir 2, Arna Valgerður Einarsdóttir 2, Emma Havin Davoody 1, Monika Rutkowska 1, Lilja Þórisdóttir 1.

Akureyri er enn á botni deildarinnar án stig aen Haukar eru í fimmta sæti með þrettán stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×