Fótbolti

Eiður í leikmannahópi Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiður Smári var í byrjunarliði Börsunga á miðvikudaginn en var tekinn af velli eftir 52 mínútur.
Eiður Smári var í byrjunarliði Börsunga á miðvikudaginn en var tekinn af velli eftir 52 mínútur. Nordic Photos / AFP

Eiður Smári Guðjohnsen er í leikmannahópi Barcelona sem mætir Valencia í spænsku úrvalsdeildinni klukkan 21.00 í kvöld. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Sýn.

Lionel Messi er einnig í hópnum en hann var hvíldur í leiknum gegn Stuttgart í Meistaradeildinni á miðvikudaginn síðastliðinn. Gianluca Zambrotta er einnig í hópnum en þeir Marc Crosas og Lilian Thuram eru ekki í hópnum að þessu sinni.

Oleguer Presas, Santiago Ezquerro og Thierry Henry eru enn frá vegna meiðsla. Þeir tveir fyrstnefndu æfðu ekki með liðinu í gær en Henry var í sérþjálfun vegna sinnar endurhæfingar.

Hópur Barcelona:

Markverðir: Victor Valdés og Albert Jorquera.

Varnarmenn: Carles Puyol, Rafael Marquez, Eric Abidal, Gianluca Zambrotta, Sylvinho og Gabriel Milito.

Miðvallarleikmenn: Xavi Hernandez, Andrés Iniesta, Yaya Toure, Deco og Eiður Smári Guðjohnsen.

Sóknarmenn: Ronaldinho, Samuel Eto'o, Bojan Krkic, Giovani dos Santos og Lionel Messi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×