Ragna Ingólfsdóttir tapaði í dag fyrir Elizabeth Cann frá Englandi í 16-manna úrslitum á alþjóðlegu badmintonmóti á Ítalíu.
Úrslitin koma þó ekki á óvart þar sem Cann er átján sætum ofar en Ragna á heimslistanum.
Cann vann í tveimur settum, 21-18 og 21-14.
Næst tekur Ragna þátt í móti í Grikklandi dagana 19.-22. desember næstkomandi. Það verður síðasta mótið sem hún tekur þátt í á þessu ári.