Fótbolti

Eiður fékk magakveisu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Samuel Eto'o á æfingu með Barcelona í gær.
Samuel Eto'o á æfingu með Barcelona í gær. Nordic Photos / AFP

Eiður Smári Guðjohnsen gat ekki æft með Barcelona í gær þar sem hann fékk magakveisu. Hann var þó mættur á æfingu á nýjan leik í dag.

Aðeins vantaði þrjá leikmenn á æfinguna í dag. Það eru þeir Oleguer og Thierry Henry sem eru frá vegna meiðsla og Yaya Toure sem var með hita í dag.

Giovani, Deco og Edmilson eru ekki orðnir leikfærir vegna meiðsla sinna en þeir æfðu í dag engu að síður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×