Eiður hafði hægt um sig í grannaslagnum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. desember 2007 22:43 Eiður Smári í baráttu við Jarque, leikmann Espanyol í kvöld. Nordic Photos / AFP
Espanyol og Barcelona gerðu í kvöld 1-1 jafntefli í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Eiður Smári Guðjohnsen lék fyrstu 72 mínútur leiksins og hafði hægt um sig. Andrés Iniesta kom Börsungum yfir strax á sjöttu mínútu eftir undirbúning Lionel Messi. Leikmenn Barcelona voru talsvert frá sínu besta í kvöld og náði varamaðurinn Coro að jafna metin fyrir Espanyol á 69. mínútu, aðeins fimm mínútum eftir að hann kom inn á. Á 64. mínútu fór Bojan Krkic út af og Ronaldinho kom inn á. Eiður Smári fór þá í fremstu víglínu en var svo skipt út af á 72. mínútu fyrir Santi Ezquerro. Þetta var fyrsti leikur Ezquerro á tímabilinu en Börsungar eiga við mikil meiðsli að stríða í sínum herbúðum. Leikmenn Barcelona reyndu hvað þeir gátu til að skora sigurmarkið á lokamínútum leiksins en allt kom fyrir ekki. Fyrr í kvöld tapaði Sevilla óvænt fyrir Almería á útivelli, 1-0. Acasiete skoraði sigurmark leiksins á 88. mínútu. Real Madrid vann hins vegar öruggan sigur á Racing Santander, 3-1. Raúl skoraði tvívegis en þess á milli skoraði Sánchez sjálfsmark. Munitis minnkaði svo metin um miðjan síðari hálfleik. Real Madrid er á toppi deildarinnar með 32 stig en Barcelona og Villarreal koma næst með 28 stig. Villarreal getur minnkað muninn í eitt stig á morgun er liðið mætir Valladolid á útivelli. Espanyol er í fjórða sæti með 26 stig en Sevilla er í ellefta sæti með fimmtán stig. Racing Santander er í sjöunda sæti með 23 stig en eftir sigur kvöldsins er Almería komið í tíunda sæti deildarinnar með sextán stig.
Spænski boltinn Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira