Í hádeginu var dregið í 8-liða úrslit í Eimskipsbikarnum í handbolta og þar verða tveir stórleikir. Þá varð ljóst að amk eitt lið utan N1 deildarinnar kemst í undanúrslitin.
Bikarmeistarar Stjörnunnar sækja Fram heim og Íslandsmeistarar Vals taka á móti Haukum. Spútniklið Aftureldingar 2 fær Akureyri í heimsókn og þá tekur Þróttur Vogum á móti Víkingi.
Leikirnir fara fram dagana 2. og 3. desember nk.