Í morgun var dregið í þriðju umferð EHF keppninnar í handbolta og þar fengu HK menn leik gegn Arnóri Atlasyni og félögum í danska liðinu FCK í Kaupmannahöfn. Framarar mæta tyrkneska liðinu Ankara í áskorendakeppni Evrópu og kvennalið Stjörnunnar mætir franska liðinu Mios Biganos í EHF keppni kvenna.
Kvennaleikirnir í þriðju umferð fara fram dagana 3-4 nóvember og 10-11 nóvember.
Karlaleikirnir fara fram 17-18 nóvember og 24-25 nóvember.