Foreldrar Madeleine grunaðir 8. september 2007 18:59
Algjör viðsnúningur hefur orðið á framvindu leitarinnar að Madeleine litlu sem hvarf af hótelherbergi í Portúgal í maí síðastliðnum. Foreldrar stúlkunnar sem hafa með hjálp fjölmiðla ákaft leitað hennar eru nú grunaðir um að hafa myrt stúlkuna. Hvarf stúlkunnar hefur fangað athygli alheimsins en hún hvarf á dularfullan hátt að kvöldi 3. maí á meðan foreldrar hennar sátu að snæðingi nokkra tugi metra þar frá hótelinu þar sem hún lá sofandi ásamt tveimur yngri systkinum sínum. Kate og Gerry McCann hafa ákaft leitað dóttur sinnar síðan, meðal annars með dyggri aðstoð fjölmiðla. Lögreglan í Portúgal hefur farið með rannsókn málsins og hefur mörgum þótt hún ekki standa sig í stykkinu. Ný gögn í málinu gerðu það hins vegar að verkum að algjör viðsnúningur varð í rannsókn lögreglu en þá tilkynnti hún að hjónin hefðu réttarstöðu grunaðra. Gögnin sem breyttu stöðu hjónanna í stöðu grunaðra eru blóðblettir sem fundust í bifreið sem McCann-hjónin tóku á leigu rúmum þremur vikum eftir hvarf dótturinnar. Kate McCann, móðir Madeleine var yfirheyrð í gær í rúmar 11 klukkustundir og strax þar á eftir var faðir hennar, Gerry McCann yfirheyrður í um sjö klukkustundir. Breskir fjölmiðlar greindu frá því í dag að lögreglan teldi að Kate hefði fyrir slysni verið völd að dauða dóttur sinnar. Vinir og ættingjar hjónanna segja fáránlegt að ætla að foreldrarnir séu sekir um að hafa tekið stúlkuna af lífi. Hjónin hafa ekki veitt fjölmiðlum viðtal í dag en á heimasíðu þeirra segir Gerry það algjörlega út í hött að halda því fram að Kate eigi einhvern þátt í hvarfi Madeleine. Allir sem til þekki viti að hún sé saklaus og að hjónin muni halda áfram að leita að dóttur sinni.
Madeleine McCann Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Sjá meira