Eiður Smári Guðjohnsen æfði í gær á æfingasvæði Barcelona með Lionel Messi en þetta var fyrsta æfing Messi eftir þáttöku hans í Suður-Ameríkubikarnum í sumar. Þeir tóku létta æfingu þar sem þeir hlupu með bolta, æfðu sendingar og gerðu stuttar þolæfingar.
Eiður Smári æfði þó aðeins í 15 mínútur þar sem hann er að jafna sig af hnémeiðslum, en Messi æfði einn í kjölfarið.