Fjöldi ábendinga vegna Madeleine 27. maí 2007 14:10 MYND/AP
Lögreglan í Portúgal segist hafa fengið mikinn fjölda ábendinga í máli Madeleine McCann eftir að ítarlegri lýsing var gefin af manni sem grunaður er um að hafa numið hana á brott. 24 dagar eru nú liðnir síðan hinni fjögurra ára gömlu telpu var rænt úr rúmi sínu á hóteli á Algarve. Foreldrar stúlkunnar hafa ítrekað biðlað til lögreglunnar um að láta almenningi í té ítarlegri upplýsingar um mann sem grunaður en um verknaðinn en lögregla hefur hingað til ekki viljað veita þær, fyrr en nú. Breskir fjölmiðlar rekja sinnaskipti lögreglunnar í málinu til þess að faðir Madeleine fór á fund Gordons Brown, fjármálaráðherra í Bretlandi í nýliðinni viku. Nokkur hundruð símtala hafa borist lögreglunni yfir helgina og segja talsmenn hennar að flest snúi þau að þessum nýju uppýsingum. Nýju upplýsingarnar í málinu eru þær að vinkona McCann hjónanna telur sig hafa séð hvítan mann, 35 til 40 ára nálægt íbúð McCann fjölskyldunnar um klukkan hálftíu kvöldið sem Madeleine hvarf. Vinkonunni sýndist maðurinn halda á barni, en hún mun aðeins hafa séð aftan á hann og hún vissi ekki í hvaða átt hann fór. Vefsíða tileinkuð Madeleine litlu hefur nú verið heimsótt 128 milljón sinnum frá því hún var sett upp.
Madeleine McCann Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Innlent Fleiri fréttir Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Sjá meira