Interpol rannsakar nú hvarf stúlku í Portúgal Guðjón Helgason skrifar 7. maí 2007 19:26
Kate McCann, móðir Madeleine litlu, þriggja ára stelpunnar, sem rænt var í Portúgal í fimmtudagskvöld, grátbað í dag ræningja hennar að meiða hana ekki eða hræða. Hún bað þá sem rændu henni að láta vita hvar hægt væri að finna hana. Á blaðamannafundi portúgölsku lögreglunnar í kvöld kom fram að Alþjóðalögreglan Interpol tæki nú þátt í rannsókn málsins og allt gert til að finna stúlkuna. Móðir Madeleine kom fram í sjónvarpi í dag og var ákall hennar átakanlegt. Hún bað mannræningjann um að flytja Madeleine á öruggan stað þar sem hægt yrði að sækja hana. Portúgalska lögreglan hefur grun um að ræninginn sé breskur. Margir sjónarvottar hafa skýrt frá því að þeir hafi séð hálfsköllóttann mann draga litla telpu með sér að bátahöfn skammt frá hótelinu þar sem Madeleine dvaldi ásamt foreldrum sínum. Sá möguleiki er því yfir hendi að telpan hafi verið flutt burt á báti. Fyrrverandi lögregluforingi í Portúgal sagði í sjónvarpsviðtali að leitað væri að breskum manni. Hann sagði einnig að vísbendingar væru um að ránið hefði verið vel undirbúið. Foreldrar Madeleine eru bæði læknar, og vel efnuð. Hundrað þúsund pund, rúmlega tólf og hálf milljón króna, hafa verið boðnar fyrir upplýsingar sem gætu upplýst hvarfið.
Madeleine McCann Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Sjá meira