Sjö afganskir hermenn létust í vegasprengju í Afganistan í morgun. Árásin átti sér stað við landamæri Pakistan. Þetta er síðasta tilfellið í hrinu sprengjuárása á afganskar öryggissveitir í landinu. Hermennirnir voru á moldarvegi í Paktika héraði í suðurausturhluta landsins þegar sprengjan sprakk.
Reutersfréttastofan hefur eftir Akram Khpelwak héraðsstjóra að sprengjan hafi gjöreyðilagt bifreiðina sem mennirnor voru í.