Einn síðasti aðstoðarmaður Hitlers látinn Óli Tynes skrifar 4. apríl 2007 09:58 Barón Berd Freytag von Loringhoven.
Barón Bernd Freytag von Loringhoven einn af aðstoðarmönnum Adolfs Hitlers í byrgi hans í Berlín lést 27. febrúar síðastliðinn. Fjölskyldan kaus að skýra ekki frá andláti hans fyrr en nú. Loringhoven, sem var 93 ára gamall var einn af síðustu eftirlifandi aðstoðarmönnum Hitlers, frá lokum heimsstyrjaldarinnar. Hlutverk hans undir lokin var að taka saman skýrslur fyrir foringjann um framgang Rauða hersins, sem stöðugt nálgaðist Berlín. Loringhoven sótti upplýsingar sínar um það að mestu hjá Reuters fréttastofunni og breska útvarpinu BBC. Til allrar hamingju fyrir hann komst Hitler aldrei að því. Fyrr í stríðinu var Loringhoven margheiðraður skriðdrekaforingi sem barðist við hlið Heinz Guderians. Sjálfur varð hann hershöfðingi og varaformaður þýska herráðsins. Loringhoven skrifaði bók um síðustu daga þriðja ríkisins og lýsti þar ótrúlegu andrúmsloftinu í byrgi Hitlers. Hann var maður skarpgáfaður og var oft kallaður til sem sagnfræðilegur ráðunautur við gerð kvikmynda og sjónvarpsþátta um styrjöldina. Síðast kom hann við sögu við gerð kvikmyndarinnar Der Untergang. Hann féll í hendur Breta í lok stríðsins og sat í fangabúðum í tvö ár, en var aldrei sakaður um neina stríðsglæpi.
Erlent Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira