Forseti Suður-Afríku að miðla málum í Zimbabwe Jónas Haraldsson skrifar 29. mars 2007 17:34 Mugabe þegar hann kom til fundahalds fyrr í dag. MYND/AFP
Afrískir leiðtogar samþykktu í dag að forseti Suður-Afríku, Thabo Mbeki, muni reyna að miðla málum í Zimbabwe. Þetta var ákveðið á leiðtogafundi sem haldinn var í Dar Es Salaam í Tanzaníu. Þeir hvöttu vesturveldin einnig til þess að hætta refsiaðgerðum gegn landinu. Robert Mugabe, forseti Zimbabwe, hefur undanfarið sætt harðri gagnrýni alþjóðasamfélagsins fyrir meðferð sína á stjórnarandstöðu landsins. Í lok fundarins báðu þeir Breta einnig að virða skuldbindingar sínar við Zimbabwe en Bretar hafa lofað að styrkja landakaup ríkisins og aðstoða þannig við endurúthlutun lands. Mugabe hefur lengi krafist þess að Bretar geri það. Leiðtogafundurinn var á vegum Southern African Development Community (SADC), eða Þróunarsamtökum ríkja í suðurhluta Afríku. Í samtökunum eru alls 14 ríki. Hingað til hafa þau lítið gagnrýnt Mugabe og stjórnarhætti hans. Leiðtogar samtakanna ákváðu þó að halda þennan tveggja daga neyðarfund til þess að takast á við ástandið í Zimbabwe eftir mikla og háværa gagnrýni alþjóðasamfélagsins. Í Zimbabwe ríkir mikil óánægja hjá almenningi þar sem gríðarmikið atvinnuleysi er í landinu, eða um 80 prósent. Verðbólga er einnig komin yfir 1.700 prósent. Mugabe hefur verið við völd í landinu í 27 ár, eða síðan það fékk sjálfstæði árið 1980. Hann ætlar sér að bjóða sig fram í forsetakosningum árið 2008 þar sem hann telur að Zimbabwe geti ekki án hans verið. Mugabe er 83 ára gamall.
Erlent Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira