Stjórnarskrárbreytingar samþykktar 27. mars 2007 21:22 MYND/AFP
Umdeildar breytingar á stjórnarskrá Egyptalands voru samþykktar með 75,9% atkvæða. Talsmenn stjórnvalda skýrðu frá þessu í dag. Þeir sögðu jafnframt að kjörsókn hefði verið 27% en sumir sjálfstæðir eftirlitshópar sögðu að kjörsókn hefði ekki verið meiri en fimm prósent. Aðalstjórnarandstöðuflokkur Egyptalands sniðgekk kosningarnar og gagnrýndi harkalega þær breytingar sem voru síðan samþykktar. Háttsettur maður í Bræðralagi múslima sagði að úrslitin væru fölsuð. Á meðal breytinga sem að verða nú er að bannað verður að stofna trúarlega stjórnmálaflokka og völd lögreglunnar verða aukin til muna. Stjórnvöld segja breytingarnar styrkja lýðræðið í landinu en andstæðingar segja að nú verði auðveldara að hagræða úrslitum kosninga. Stjórnvöld hafa tilkynnt að frekari breytinga sé að vænta. Þau voru farin að fagna úrslitum og góðri kjörsókn áður en ljóst var hvernig hafði farið. Þau ætla sér að auka völd lögreglunnar til þess að geta betur barist gegn hryðjuverkamönnum. Einnig hefur verið komið í veg fyrir að fulltrúar dómskerfisins fylgist með framkvæmd kosninga en stéttarfélag dómara í Egyptalandi hefur fordæmt kosninguna og neitað að viðurkenna úrslit hennar.
Erlent Mest lesið Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán