Ógnað með byssum og síðan rænt 23. mars 2007 19:00
Liðsmenn íranska byltingarhersins tóku í dag höndum 15 breska sjó- og landgönguliða sem voru við eftirlit í íraskri landhelgi. Þeim var ógnað með skotvopnum en ekki kom til átaka. Íranska sjónvarpið staðfesti skömmu eftir hádegi í dag að mennirnir hefðu verið teknir höndum í morgun þar sem þeir höfðu farið um borð í skip í Persaflóa en grunur lék á að verið væri að smygla bílum með því. Þeim hafði verið falið að gæta olíuflutningaleið Íraka í suðri með Shatt al-Arab siglingaleiðinni sem myndar landamæri milli Írans og Íraks. Þeim var einnig falið að framfylgja ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna hvað Íraka og landhelgi þeirra varðar. Að sögn breska varnarmálaráðuneytisins var bresku sjóliðunum ógnað með skotvopnum en ekki kom til átaka. Íranski sendiherrann í Lundúnum var kallaður til fundar í breska utanríkisráðuneytinu síðdegis og þess krafist að sjóliðarnir yrðu þegar látnir lausir. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Íranar taka breska sjó- og landgönguliða höndum. Það gerðist síðast í júní 2004 á Shatt al-Arab siglingaleiðinni. Þeir voru átta og allir sýndir í írönsku sjónvarpi með bundið fyrir augun þar sem þeir viðurkenndu að hafa siglt inn í íranska landhelgi án leyfis. Þeim var sleppt ómeiddum þrem dögum síðar.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira