Thierry Henry: Hrikaleg vonbrigði 10. mars 2007 12:53 Thierry Henry hefur spilað 27 leiki fyrir Arsenal í vetur og skorað í þeim 12 mörk. MYND/Getty "
Þetta eru hrikaleg vonbrigði fyrir mig og ég er algjörlega eyðilagður," segir Thierry Henry hjá Arsenal, en stjóri liðsins, Arsene Wenger, hefur sem kunnugt er staðfest að franski sóknarmaðurinn spilar ekki með liðinu það sem eftir er tímabilsins. Henry sættir sig hins vegar við orðin hlut og ætlar að mæta sterkur til leiks á næsta tímabili. "Þetta hefur verið mjög erfitt tímabil fyrir mig og nú þegar það er ljóst að ég verð ekki meira með er lítið annað að gera en að byggja sig upp fyrir næsta tímabil. Það ætla ég að gera, og ég er strax byrjaður að hlakka til næstu leiktíðar með Arsenal." Henry kennir álagi um sífellt meiðslavandræði sín í vetur, en það eru tognanir í nára og maga sem munu halda honum frá æfingu næstu mánuðina. "Síðasta tímabil var mjög langt. Ég spilaði síðasta leik ársins, úrslitaleik Meistaradeildarinnar, og fór svo nánast strax á HM þar sem ég spilaði einnig síðasta leikinn. Ég fékk nokkurra vikna hvíld sem var einfaldlega ekki nóg," sagði Henry en bætti við: "Meiðsli eru hluti af þessum leik og ég hef engar áhyggjur. Ég sný aftur á völlinn innan tíðar.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira