Semja verður við uppreisnarmenn 8. mars 2007 12:30
David Petraeus, yfirmaður Bandaríkjahers í Írak, segir útilokað að koma á friði í Írak með hernaðaraðgerðum einum saman heldur verði að fá uppreisnarmenn að samningaborðinu. Á blaðamannafundi í morgun sagði hann teikn á lofti um að átök trúarhópa í landinu væru í rénun. Petraeus hélt blaðamannafund í morgun, þann fyrsta frá því að hann tók við stöðu sinni í síðasta mánuði. Óhætt er að segja að hann hafi á þeim tíma haft í nógu að snúast. Nokkrar vikur eru frá því skorin var upp herör gegn uppreisnarmönnum í landinu sem virðast á móti hafa látið saklaust fólk finna enn meira fyrir því en áður. Bandaríska landvarnaráðuneytið samþykkti í gær að senda 2.200 herlögreglumenn til Íraks til viðbótar við þá 21.000 hermenn sem er verið að flytja þangað um þessar mundir. Alls eru því 140.000 erlendir hermenn í Írak nú um stundir. Á fundinum í morgun sagði Petreus ekki búast við að meiri liðsauka þyrfti í Írak en ítrekaði um leið að útilokað væri að þar á friði með hersveitunum einum saman. Íraska ríkisstjórnin yrði að fá þá uppreisnarhópa að samningaborðinu sem hægt væri að semja við. Hvað ofbeldið á milli sjía og súnnía varðaði sagði Petreus að áfram mætti búast við árásum á borð við þá í Hillah í vikunni sem kostaði á annað hundrað mannslíf. Engu að síður kvaðst hann sjá teikn á lofti um að átök trúarhópa væru í rénun, án þess að útskýra það nánar.
Erlent Fréttir Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Vance þreifar fyrir sér í Sviss Erlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Fleiri fréttir Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Sjá meira