Sex manns, þar af tvö börn, létu lífið í eldsvoða í ferju rétt utan við strönd Jakarta, höfuðborgar Indónesíu, í gærkvöldi. Alls voru um 250 farþegar í ferjunni þegar eldurinn braust út. Herskip og flugvélar voru sendar á staðinn til þess að aðstoða við að koma farþegum af ferjunni.
Indónesía þarf að reiða sig á flókið flutninganet ferja um hinar hundruðir eyja landsins. Viðhaldi er þó ábótavant og því eru margar ferjur í slæmu á sigkomulagi. Í desember í fyrra létust 400 eftir að ferja fórst í miklu óveðri fyrir utan ströndum Indónesíu.
