Harry prins hefur fengið skipun um að fara til Íraks. Búist er við því að opinber tilkynning þess efnis verði birt í dag. Harry er hluti af herdeildinni Hinir bláu og konunglegu. Ekkert hefur fengist uppgefið um skyldur Harrys en líklegt er talið að hann verði við landamæravörslu á landamærum Íraks og Írans.
Harry hefur tekið það skýrt fram að hann vilji ekki vera settur í skrifstofustarf heldur vilji hann vera með herdeild sinni, hvar sem hún verður. Yfirmaður hans ber þó ábyrgð á öryggi hans og á að sjá til þess að hann hafi sérstaka öryggisgæslu þegar á þarf að halda.