Ógnaði apamanni með hnífi 21. febrúar 2007 19:08
Maður með hníf ógnaði afgreiðslumanni á Akureyri í dag eftir að hafa stolið flíspeysu. Afgreiðslumaðurinn hljóp hann uppi í apabúningi og situr hnífamaðurinn nú í haldi lögreglu. Maðurinn ógnaði Sigurði Guðmundssyni verslunarmanni með hnífi eftir að stela peysu úr Víking búðinni í Hafnarstræti. Hann tók síðan á rás og hljóp Sigurður manninn uppi í apabúningi sem hann var klæddur í tilefni öskudagsins. Þá ögraði maðurinn honum aftur með hnífi og hótaði honum öllu illu, meðal annars að skera hann á háls og drepa. Sigurður hringdi þá í 112. Það virðist ljóst að Sigurður hafí í apabúningi sínum tekið nokkra áhættu með því að elta manninn, en ræninginn brá þó aldrei hníf sínum. Sigurður sagði að í svona tilfellum hugsaði maður ekki rökrétt: "þessir aumingjar eiga bara enga miskunn skilið." Lögreglan handtók manninn 37 mínútum eftir að hann stal peysunni. Hann var enn í haldi nú undir kvöld og hafði ekki verið tekin afstaða til þess hvort farið yrði fram á gæsluvarðhald. Maðurinn er á þrítugsaldri og hefur áður komið við sögu lögreglu. Til skoðunar er hvort maðurinn verði ákærður fyrir vopnað rán.
Fréttir Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira