Pakistanskur maður seldi tíu ára gamla dóttur sína fyrir 350.000 krónur til þess að borga augnaðgerð fyrir sjálfan sig. Talsmaður lögregelunnar í þorpinu þar sem þetta gerðist segir að faðirinn hafi lofað að afhenda öðrum þorpsbúa dóttur sína þegar hún næði kynþroskaaldri.
Lögreglan komst í málið vegna þess að ættingjar telpunnar leituðu til hennar. Maðurinn verður væntanlega kærður. Mál sem þetta eru ekki óalgeng í sveitum Pakistans þar sem menn annaðhvort selja dætur sínar eða láta þær upp í skuld eða til að jafna einhver ágreiningsmál.