Fidel Castro Diaz Balart, sonur Castros Kúbuleiðtoga, kveðst fullviss um að faðir sinn nái fullri heilsu innan skamms. Balart, sem er 57 ára, sagði á bókasýningu í Havana í gær að skýr teikn væru um bata hins aldna leiðtoga en hann gekkst undir erfiða skurðaðgerð í júlí síðastliðnum. Bandarísk yfirvöld grunar að Castro sé haldinn ólæknandi krabbameini og eigi skammt eftir ólifað. Á sjónvarpsmyndum sem birtar voru fyrir tveimur vikum virðist Castro hins vegar hafa braggast nokkuð þótt hann sé ennþá lasburða.
Sonur Castros segir föður sinn á batavegi
Mest lesið
Fleiri fréttir
