Alex Ferguson: Gefið McLaren vinnufrið 9. febrúar 2007 14:46 Alex Ferguson og Steve McLaren mynduðu gott teymi hjá Man. Utd. á sínum tíma. MYND/Getty
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Man. Utd, hefur hefur beðið fjölmiðla í Englandi að gefa landsliðsþjálfaranum Steve McLaren frið til að sinna starfi sínu. McLaren, sem hefur verið harðlega gagnrýndur eftir tap Englendinga gegn Spánverjum á miðvikudag, er fyrrum aðstoðarmaður Ferguson hjá Man. Utd. "Ég er sannfærður um að hann er rétti maðurinn í starfið og þið ættuð að styðja miklu betur við hann," sagði Ferguson við enska fjölmiðla í morgun. Sá skoski hefur mikla trú á hæfileikum McLaren sem þjálfari en þeir unnu saman í rúm tvö ár hjá Man. Utd. áður en McLaren tók við Middlesbrough á sínum tíma. "Eftir 10 ár gætuð þið séð eftir því að hafa bolað McLaren úr starfi sínu því ég er sannfærður um að hann mun eiga gæfuríkan þjálfaraferil. Ég þekki hans vinnubrögð og persónuleika og ég veit að hann er staðráðinn í að ná fram því besta úr enska liðinu. Honum líkar ábyggilega ekki sú staða sem hann er í núna, gagnrýni gerir engum gott. Það sem hann þarf er sigur með liðinu" segir Ferguson. "Eitt helsta vandamálið við enska landsliðsþjálfarastarfið eru vinnubrögð fjölmiðla. Leikmenn liðsins óttast þess að spila vegna þess að þeir vita hvernig viðbrögð fjölmiðla verða ef þeir spila ekki vel," sagði Ferguson jafnframt. Næsti leikur enska liðsins fer fram þann 24. mars, gegn Ísrael í undankeppni EM.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ Fótbolti Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Fleiri fréttir Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Sjá meira