Beckham leikur prinsinn 27. janúar 2007 19:30 Beckham í hlutverki prinsins. MYND/AP
Knattspyrnugoðið David Beckham hefur lagt fótboltaskó sína til hliðar um stund og tekið upp sverðið. Með því bjargar hann Þyrnirós líkt og í ævintýrinu forðum. Beckham er þegar kominn á stjörnukortið í Bandaríkjunum eftir að ljóst var að hann væri á leið til knattspyrnuliðsins Los Angeles Galaxy í MLS deildinni bandarísku. Tilboð utan knattspyrnuvallarins láta ekki á sér standa og var hann valinn í herferð Disney-fyrirtæksins sem ber heitið „Ár hinna milljón drauma." Þátttakendur bregða sér í gervi frægra Disney persóna. Beckham verður Filipus prins úr ævintýrinu um Þyrnirós. Með Beckham eru frægir skemmtikraftar á borð við söng- og leikkonuna Beyonce, sem verður Lísa í Undralandi, leikkonuna Scarlett Johansson sem leikur Öskubusku og söngvarann Lyle Lovett sem verður hérinn í Undralandinu. Ljósmyndarinn heimsfrægi, Anne Leibovitz, var síðan fengin til að festa þau á filmu í hlutverkunum. Beckham segir taka að sér hlutverk prinsins sem felli dreka. Það sé eitthvað sem hann hafi augljóslega ekki gert áður. Hann segir verkefnið spennandi og honum hafi þótt það heiður að fá að taka þátt. Hann hafi hlakkað til að vinna með Anne Leibovitz. Hún taki fallegar myndir. Myndirnar verða birtar í tímaritum á borð við Vanity Fair, GQ og Vogue.
Erlent Fréttir Mest lesið Sundlaugargestur handtekinn Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Innlent Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Erlent Fleiri fréttir Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Sjá meira