Sex mönnum var í nótt bjargað úr námu í Norður-Kína. Flætt hafði inn í hana og voru þrjátíu og fimm verkamenn fastir inni í námunni. Ekki er vitað um afdrif þeirra sem enn eru fastir í henni. Björgunarmönnum tókst að gera loftgat inn í rýmið sem námumennirnir voru í og var það síðan víkkað svo einhverjir kæmust út.
Fóru þeir sem bjargað var beint á sjúkrahús til athugunar. Námuslys eru algeng í Kína þar sem öryggi er oft ábótavant. Í fyrra létust hátt í fimm þúsund námuverkamenn í slysum sem flest mátti rekja til mannlegra mistaka.