Norðmenn eignuðust sjónvarpsstöð helgaða fréttaflutningi í gær þegar Nyhetskanalen fór í loftið. Stöðin er á vegum TV 2 sjónvarpsstöðvarinnar og sendir út dagskrá allan sólarhringinn, alla daga vikunnar.
Undirbúningur hófst fyrir fjórum mánuðum og stöðin fór svo í loftið á hádegi í gær. Trond Giske, menntamálaráðherra Noregs, segir spennandi að fylgjast með nýju stöðinni. Noregur sé vissulega lítill markaður en án efa verði frá nógu að segja.