Vígamenn í Mogadish, höfuðborg Sómalíu, skutu loftskeyti á tankbíl sem var að flytja bensín í gær. Þó nokkrir særðust í árásinni en stjórnvöld sögðu málið ekki stórt, sem kannski gefur hugmynd um ástandið í borginni.
Sögðu þau það hafa snúist um að vígamennirnir hafi verið að reyna að fá verndargjald hjá bílstjóranum og þegar hann hafi neitað að greiða það hafi loftskeytið verið niðurstaðan.