Er hæstánægður með höfuðstöðvarnar 3. október 2007 00:01 Einar Einarsson „Það hefur alltaf verið mikil áhersla lögð á vöruþróun hjá Marel.
Þetta er stór dagur,“ segir Einar Einarsson, forstjóri Marel Food Systems í Bandaríkjunum, glaður í bragði þar sem við höfum tyllt okkur niður í einu af afdrepunum fyrir starfsfólk í nýjum höfuðstöðvum fyrirtækisins í Kansas. Þær voru opnaðar formlega fyrir sléttri viku. Einar getur vissulega verið ánægður enda höfuðstöðvarnar hinar glæsilegustu og margt þar að finna sem ekki tíðkast hjá fyrirtækjum vestanhafs. Eitt af því er afdrepið, en í Bandaríkjunum er slík hvíldaraðstaða almennt talin draga úr afköstum starfsfólks fremur en að blása því kappi í kinn eftir smáhvíld. Mér er sagt að þetta sé flutt vestur um haf frá Íslandi. Fleira kemur yfir Atlantshafið, svo sem lofthæðin, en talsvert er hærra til lofts í höfuðstöðvunum en alla jafna í bandarískum fyrirtækjum. Marel Food Systems er jafnvel meira umhugað um starfsmennina. Þeir sem rætt var við fullyrtu að þeir fengju betri tryggingar en gengur og gerist.HJARTAÐ Í SÝNINGARSALNUMEin af helstu nýjungunum í höfuðstöðvum Marel Food Systems er sýningarsalur þar sem viðskiptavinum gefst kostur á að prófa tæki fyrirtækisins við sem raunverulegastar aðstæður. Einar segir að þótt önnur fyrirtæki vestanhafs, sem þó séu sárafá, búi yfir slíkum sal, muni hann skipta sköpum fyrir gengi fyrirtækisins. Marel Food Systems hafi fram til þessa sent tæki á vörusýningar víða um land auk þess sem heilu línurnar hafi verið settar upp í verksmiðjum viðskiptavina til að sýna virkni þeirra við raunverulegar aðstæður. Nú sé hægt að breyta um áherslur. „Ef við setjum upp línur í verksmiðjum er misjafnt hvernig tekst til,“ segir hann og bætir við að stundum séu uppsetningar á vélum til sýnis í verksmiðjum ekki nógu vel heppnaðar því margt trufli kynningarnar. „En hér höfum við þá [viðskiptavinina] í friði og getum farið í gegnum allt ferlið með þeim óáreittir. Í rauninni ætti sölunni að ljúka hérna hjá okkur líka,“ segir Einar en flogið verður með viðskiptavini til höfuðstöðva Marel í Lenexa í Kansas í stað þess að flytja níðþungan tækjabúnað víðs vegar um land til uppsetningar í sýningarskyni.Einar segir það margborga sig að fá viðskiptavini fyrirtækisins til höfuðstöðvanna í Kansas í stað þess að flytja heilu línurnar landshorna á milli. Í fyrsta lagi sé það talsvert ódýrara auk þess sem slit á tækjum minnki til muna. „Við erum að íhuga það alvarlega að draga úr vörusýningum og færa markaðsstarfið í sýningarsalinn,“ segir Einar. Bæði hefur sýningunum fækkað og fyrirtækjum og gestum fækkað sem sækja slíkar sýningar enda hafa samrunar valdið því líkt og í öðrum iðngeirum að fyrirtækin eru færri en stærri. Hann segist vænta þess að breytingin muni skila verulegum ávinningi. „Við viljum fylgja þessu eftir og mæla árangurinn,“ segir hann.MIKLU VARIÐ Í VÖRUÞRÓUNAthyglisvert er hversu áhugasamir Marelmenn eru um eigin vörur; þeir bókstaflega hætta ekki að horfa á það sem betur má fara. Áhuginn smitar út frá sér, ekki síst til viðskiptavina. „Það hefur alltaf verið mikil áhersla lögð á vöruþróun hjá Marel. Það er lykilhugtak í sögu okkar,“ segir Einar og bendir á að fyrirtækið einbeiti sér að því að gera ávallt betur og hafi um árabil varið sex til átta prósentum af tekjum félagsins í vöruþróun. „Við höfum aldrei hvikað frá því en það þýðir að viðskiptavinir okkar geta alltaf verið vissir um að við séum alltaf með eitthvað nýtt,“ segir hann og bætir við að með sýningarsalnum í nýju höfuðstöðvunum sé enn frekar verið að undirstrika að hlutirnir gerist hjá Marel Food Systems.
Héðan og þaðan Mest lesið „Ég hef þó aldrei kunnað vel við titilinn framkvæmdastjóri“ Atvinnulíf 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Viðskipti innlent Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Viðskipti innlent Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Atvinnulíf Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Viðskipti innlent Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Viðskipti innlent Klara á Kanarí: „Fólk kom með ferðatöskur af saltfiski og seldi“ Atvinnulíf Miðeind festir kaup á Snöru Viðskipti innlent Topplúgan kom á óvart á annars praktískum ferðatrukk Samstarf Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Miðeind festir kaup á Snöru Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Reon ræður inn hönnunarstjóra frá Spotify Kjarasamningar Play og ÍFF í höfn Greiddu 865 milljónir fyrir Herkastalann Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Hrefna stýrir Attentus SFF hafna ásökunum bifreiðaeigenda „Klárlega“ breytingar í ytra umhverfi sem ÁTVR þurfi að laga sig að Vilborg Arna og Auðbjörg til liðs við FranklinCovey Þorgerður skipuð forstjóri ÁTVR „Ég veit ekki alveg hvað er að fara að gerast“ Ríkið greiddi 25 milljarða í laun Skor flytur: „Ansi þreytt“ að þurfa að reka fólk út klukkan tíu Meðallaun 758 þúsund á mánuði Saka hagfræðing SFF um að reyna að draga úr samkeppni í tryggingum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Sveiflujöfnunarauki helst óbreyttur Ráðinn framkvæmdastjóri Janusar heilsueflingar Fyrsta sinni í mörg herrans ár neftóbakslaust í Leifsstöð Mun stýra Starfsþróunarsetri BHM Tilfallandi neftóbaksskortur veldur skjálfta 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Sjá meira