Curbishley segir falldrauginn viðvarandi 27. desember 2006 17:00 Alan Curbishley byrjaði ferilinn hjá West Ham með sigri gegn Man. Utd. en fékk skell gegn Portsmouth í gær. MYND/Getty
Alan Curbishley, sem Eggert Magnússon fékk til að stýra skútu West Ham fyrir skemmstu, segir að það verði erfitt fyrir félagið að losna úr greipum botnbaráttunnar í ensku úrvalsdeildinni miðað við frammistöðuna sem liðið sýndi gegn Portsmouth í gær. West Ham er í 18. sæti deildarinnar og í fallsæti. “Það er mikil vinna framundan og ég gerði mér fyllilega grein fyrir því áður en ég skrifaði undir. Það þarf ekki annað en að líta á stigatöfluna til að sjá að það er ekki allt með felldu. Það er ekki auðvelt að losna úr slíkri botnbaráttu,” segir Curbishley. Enski þjálfarinn segir að hann muni ábyggilega reyna að fá einhverja nýja leikmenn til liðsins í næsta mánuði en að í augnablikinu einbeiti hann sér að því að ná sem mestu út úr þeim leikmönnum sem hann hafi. Athygli vakti að ekkert pláss var fyrir Javier Macherano né Lee Bowyer í leikmannahópi West Ham gegn Portsmouth. “Ég talaði lengi við Bowyer og ég veit að hann er algjörlega trúr þessu félagi. Hann skildi ákvörðun mína og veit að hún þýðir alls ekki að ferli hans hér er lokið. Hann getur ennþá gert mikið og gott starf fyrir West Ham,” sagði Curbishley en minntist ekki einu orði á Mascherano.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið 32 ára lögreglukona átti sögulegan klukkutíma Sport „Eins og Ísland en bara enn betra“ Fótbolti Jack Nicklaus fær sex milljarða í meiðyrðamáli Golf Dæmdur úr leik á grátlegan hátt á HM í bakgarði Sport Hrósaði unga Íslendingnum: „Gæti orðið okkar jóker“ Fótbolti Albert valdi leikmenn Man. United sem hann þolir ekki Enski boltinn Sigurbjörn gæti snúið aftur til starfa: „Það kemur bara í ljós á næstu dögum“ Sport „Veistu hvað leikmaðurinn sagði við mig?“ Íslenski boltinn Breyta reglum eftir brellu Stjörnunnar Körfubolti Sjáðu sögulegt mark Viktors Bjarka og öll hin í Meistaradeild Evrópu Fótbolti Fleiri fréttir Rýndu í lið Bjarna og Guðlaugs: „Eins og í formannsslagnum um árið“ Framlengdu í leyni eftir bannið Albert valdi leikmenn Man. United sem hann þolir ekki Ekki með allt þetta fína en ótrúlega tölfræði Klopp útskýrði af hverju hann hafnaði Man. Utd Dyche snýr aftur í enska boltann Bruno segir að stuðningsfólk Liverpool hafi hjálpað United-liðinu Sagðir vilja kaupa Man United með hjálp Beckham eða Cantona West Ham enn stigalaust á heimavelli á leiktíðinni Klopp útilokar ekki endurkomu til Liverpool: Það er mögulegt Sonur Stuart Pearce lést í slysi Albert setti pressu á Öddu: „Ég skal bara gefa þér þetta víti“ Fyrrverandi leikmaður Real Madrid og Everton fékk slag Messan um Lammens: „Hann er með góða áru“ Dyche færist nær Forest Slot vildi stöðva leik: Liverpool gerir ekki svona „Að tapa fjórum leikjum í röð hefur án vafa áhrif á liðið“ Sjáðu allt það helsta úr frægðarför United til Liverpool Dramatískur endurkomusigur United Þriðji deildarsigur Villa í röð Mancini og Dyche á óskalista Forest Þrenna Mateta kom í veg fyrir að Bournemouth kæmist á toppinn Arsenal vann Lundúnaslaginn Haaland skaut City á toppinn Postecoglou rekinn Hitnar enn undir Postecoglou Fékk fjögur rauð gegn Liverpool Guéhi hafnaði samningstilboði frá Palace og fer næsta sumar Stjórinn og fyrirliðinn koma Wirtz til varnar Maðurinn sem vildi breyta nafninu sínu í Manchester United er allur Sjá meira