Tvær stúlkur 16 og 17 ára gamlar, voru handteknar í Grindavík í nótt grunaðar um að hafa tekið bifreið ófrjálsri hendi og ekið henni á steinhleðsluvegg við skemmtistaðinn Festi.
Þær sluppu án teljandi meiðsla en bifreiðin er mikið skemmd sem og veggurinn. Stúlkurnar gistu fangageymslur lögreglu í Keflavík í nótt.