Heilbrigðisyfirvöld í Hollandi hafa kallað um tuttugu Hollendinga til rannsóknar, en þeir höfðu gist á Millenium hótelinu í Lundúnum, þar sem rússneski njósnarinn Alexander Litvinenko dvaldi um það leyti sem hann veiktist af pólon 210 geislaeitrun. Talsmaður heilbrigðisyfirvalda sagði að niðurstöður rannsóknanna myndu liggja fyrir á næstu þrem vikum.