Dæmdur fyrir kókaínsmygl 8. nóvember 2006 14:35 MYND/Vilhelm
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í eins og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa reynt að flytja inn tæp sjö hundruð grömm af kókaín til landsins í mars á þessu ári sem ætluð voru til söludreifingar. Fíkniefnunum kom maðurinn fyrir í tölvu sem hann flutti með sér í flugi frá Bandaríkjunum en tollverðir á Keflavíkurflugvelli fundu efnin við leit. Maðurinn játaði sök fyrir dómi og bar að hann hefði komist í kynni við mann í Flórída sem hann hefði ætlað að útvega fíkniefni. Maðurinn hefði hins vegar aldrei fengið fíkniefnin og því hótað ákærða, meðal annars varðandi börn hans. Til þess að losna úr málinu sagðist ákærði hafa þurft að flytja efnin frá Miami til Íslands en hann hafi ekki átt að fá neitt greitt fyrir að flytja þau. Við ákvörðun refsingar var horft til þess að brotið hafi beinst að mikilsverðum hagsmunum og þá hafi styrkleiki efnanna verið mikill. Hins vegar var einnig horft til þess að ákærði hefði játað brot sitt hreinskilnislega og ekki hefði annað komið fram í málinu en að ákærði hefði aðeins komið að því að búa um efnin ytra og flytja þau til landsins. Þótti því 18 mánaða fangelsi hæiflegur dómur en frá því dregst um tveggja vikna gæsluvarðhald. Þá var ákærði dæmdur til að greiða um 725 þúsund krónur í sakarkostnað.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Sjá meira