34 ára aldursmunur 20. október 2006 23:39 Gina Lollobrigida og Javier Rigau í samkvæmdi í Monaco fyrir rúmum 2 árum. MYND/AP
Ítalska kvikmyndaleikkonan Gina Lollobrigida, sem eitt sinn var sögð fallegasta kona í heimi, ætlar að ganga að eiga mann sem er 34 árum yngri en hún. Lollobrigida, sem er 79 ára, segir í viðtali við spænska glanstímaritið Hola að hún ætli að ganga að eiga spænska kaupsýslumanninn Javier Rigau, sem er 45 ára. Hún kynntist honum í samkvæmi í Monte Carlo árið 1984 og hafa þau hittst á laun síðan þá, eða í 22 ár. Lollobrigida segir að hún hafi alltaf verið veik fyrir yngri mönnum því þeir gefi svo mikið af sér og séu lausir við geðflækjur. Hún segir Javier ástríðufullan eins og allir Spánverjar séu. Lollobrigida skildi við fyrri eiginmann sinn, júgóslavneska lækninn Milko Skofic, árið 1971 eftir 22 ára hjónaband. Þau eignuðust einn son. Hún hefur ekki gifst aftur. Lollobrigida ætlar að þessu sinni að gifta sig í kirkju en segist ekki ætla að klæðast hvítu. Lollobrigida lék í fjölmörgum kvikmyndum á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar og var á þeim tíma einn helsti keppinautur Sophiu Loren um titilinn "fallegasta kona Ítalíu". Síðla á sjötta áratugnum sneri hún sér að fréttaljósmyndun og náði töluverðum frama í þeim geira. Hún helgaði sig þá einnig öðrum áhugamálum. Á tíunda áratugnum sneri hún sér aftur að kvikmyndaleik um stund og lék þá í nokkrum smærri myndum. Árið 1999 bauð hún sig fram til Evrópuþingsins en náði ekki kjöri.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira