Enn óvíst hverjir taka sæti Argentínu í Öryggisráði SÞ 17. október 2006 23:00 Jorge Valero, vara-utanríkisráðherra Venesúela, ræðir við fulltrúa Ekvador á Allsherjarþinginu skömmu áður en greidd voru atkvæði um skipan í sætið í 16. sinn í dag. MYND/AP
Atkvæðagreiðslum um arfta Argentínumanna í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna hefur verið frestað um sólahring svo hægt verði að ræða næstu skref. Gvatemala og Venesúela berjast um sætið en hvorugu ríki hefur tekist að fá 2/3 atkvæða á Allsherjarþinginu sem þarf til að hreppa hnossið. Í dag og í gær er búið að greiða atkvæði 21 sinni og hefur Gvatemala haft vinningin, en betur má ef duga skal. Barist er um sæti í ráðinu sem er ætlað rómönsku Ameríku. Litið er á baráttu ríkjanna sem birtingarmynd þeirra deilu sem hefur verið í gangi milli Bandaríkjanna og Venesúela. Hugo Chavez, forseti Venesúela, hefur gagnrýnt bandarísk stjórnvöld harðlega og sagt Bush Bandaríkjaforseta djöful í mannsmynd. Francisco Javier Arias Cardenas, sendifulltrúi Venesúela hjá SÞ, segir stjórnvöld í Caracas aðeins víkja ef Bandaríkjamenn hætti að reyna að hafa áhrif á fulltrúa ríkja á þinginu til að tryggja Gvatemala sigur. Ríki rómönsku Ameríku binda vonir við að hægt verði að sættast á að annað land taki sætið af Argentínu í upphafi næsta árs. Ráðamenn í Chile leggja áherslu á að sú leið verði farin.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira