Forráðamenn Tottenham hafa nú hætt við öll áform um að reyna að fá að kaupa Ólympíuleikvanginn í London sem notaður verður á leiknunum árið 2012, því félagið hefur ekki áhuga á að spila á velli sem hefur hlaupabrautir.
Tottenham er hægt og bítandi farið að íhuga að stækka núverandi heimavöll sinn White Hart Lane, en ekki hefur verið ákveðið hvort stækka á gamla völlinn eða byggja nýjan.