Óttast að Framsóknarmenn komi í veg fyrir þingsetu 5. október 2006 21:00
Svo gæti farið að varaþingmaður, sem sagði sig úr Framsóknarflokknum, taki sæti á þingi á næstunni. Hann óttast þó að flokkurinn reyni að koma í veg fyrir það. Jóhann M. Hauksson, stjórnmálafræðingur, var í sjötta sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður í síðustu Alþingiskosningum en hann sagði sig úr flokknum eftir kosningarnar. Tveir Framsóknarmenn náðu kjöri í kjördæminu, þeir Halldór Ásgrímsson og Árni Magnússon, þeir hafa báðir látið af þingmennsku og varamenn tekið þeirra sæti. Á heimasíðu sinni segir Jóhann frá því að haft hafi verið samband við hann frá Framsóknarflokknum og hann beðinn um ganga aftur í flokkinn. Ástæðan væri sú að vegna fjarveru þingmanna séu líkur á að hann þurfi að fylla í þeirra skarð á þingi. Hann hafi hins vegar lýst því yfir að hann hefði engan áhuga á að ganga aftur í Framsóknarflokkinn en hann bregðist ekki skyldum sínum ef til þess komi að hann verði kallaður á þing. Jóhann segir að stuttu síðar hafi hann fengið samtal frá fyrrum félaga sínum í flokknum. Sá hafi reynt að sannfæra hann um að taka ekki sæti á Alþingi, ef til þess kæmi, heldur forfallast. Jóhann svarað honum og sagði að hann hefði engan hug á því. Þessi fyrrverandi félagi hans hafi hins vegar ekki verið eins kurteis og konan sem hann talaði við fyrr um daginn. Á heimasíðu sinni segist Jóhann ekkert hafa heyrt meira um málið en hann telji að reynt verði að koma hlutunum þannig fyrir að ekki komi til þess að hann þurfi að taka sæti á þingi.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Fleiri fréttir Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sjá meira