Þyrla landhelgisgæslunnar sótti slasaðan mann sem dottið hafði af hestbaki við Gljúfurleiti, nærri Sultartangalóni, um sjöleytið í gærkvöld.
Maðurinn meiddist á höfði en ekki er ljóst hversu alvarleg meiðslin eru. Hann var fluttur á gæsludeild Landspítalans.