Saviola hafði ekki áhuga á að fara til Aston Villa
Saviola stóð sig vel hjá Sevilla á síðustu leiktíð, en krafta hans er ekki óskað hjá Barcelona frekar en áðurNordicPhotos/GettyImages
Umboðsmaður argentínska framherjans Javier Saviola hjá Barcelona hefur gefið það upp að leikmaðurinn hafi hafnað tilboði um að ganga í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Aston Villa. Saviola hefur ekki spilað af neinu viti fyrir spænska liðið í tvö ár og útlit fyrir að hann verði annað hvort seldur eða lánaður frá félaginu enn eina ferðina.