Hannes Hlífar Stefánson vann Héðinn Steingrímsson í fyrstu einvígisskákinni af fjórum í gærkvöldi, en þeir tefla nú um Íslandsmeistaratitilinn í skák.
Fjöldi áhofenda kom á skákstað og sá Helgi Ólafsson stórmeistari um skákskýringar. Næsta einvígsskák fer fram í dag klukkan fimm í húsi Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi og er atburðurinn opinn áhorfendum.