Úrslit kynnt í dag 2. ágúst 2006 11:15 Hljómsveitin Mammút spilar í Galtalæk um verslunarmannahelgina MYND/ Adam Scott
Umboðsskrifstofan Concert hefur undanfarið leitað af ferskum hljómsveitum og söngvurum til að skemmta á fjölskylduhátíðinni í Galtalæk um Verslunarmannahelgina. Mikill áhugi hljómsveita var fyrir þessu einstaka tækifæri og barst skrifstofunni fjöldi umsókna. Concert hefur nú valið nokkrar sveitir sem ætla að stíga á stokk og trylla lýðinn. Tónlistarflutningur sveitanna er fjölbreyttur og allt frá rappi upp í rokk. Á meðal þeirra sveita sem koma fram eru Mammút og Búdrýgindi. Báðar þessar sveitir hafa meðal annars á ferli sínum afrekað að vinna Músíktilraunir. Áhugi upprennandi tónlistarmanna fyrir söngvarakeppninni var ekki minni en hjá hljómsveitunum en 187 söngvarar á aldrinum 12 til 17 ára sóttu um. Fjölmargir umsækjenda voru hæfileikaríkir en aðeins 12 fá tækifæri til að taka þátt í keppninni í Galtalæk laugardaginn 5. ágúst og hafa þeir verið valdir. Sigurvegarinn fær að syngja inn á Jólaplötuna Jólaskraut II sem kemur út fyrir jólin. Dagskráin á Fjölskylduhátíðinni í Galtalæk er fjölbreytt og ættu allir að geta skemmt sér vel en meðal þeirra sem koma fram eru Sumargleðin, Stuðmenn, Paparnir, Skítamórall og Idolstjörnurnar Bríet Sunna, Ingó og Snorri. Nöfn þeirra hljómsveita og söngvara sem urðu fyrir valinu að þessu sinni verða birt á heimasíðu Concert, www.concert.is, klukkan 12 í dag.
Lífið Menning Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira