Mikilvægur ljósleiðari hjá Og Vodafone rofnaði um níuleytið í morgun og veldur það truflunum á fjarskiptakerfi Og Vodafons. Geta notendur fastlínu, GSM og ADSL þar af leiðandi búist við miklum truflunum á meðan þjónustan er flutt eftir megni á varaleiðir. Ekki er vitað hvenær viðgerðum lýkur.