Bætist við á Iceland Airwaves 2006 26. júní 2006 11:36 Islands frá Kanada
Who Made Who? (DK), The Cribs (UK), Islands (CAN) - og 12 aðrir listamenn bætast dagskrá tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves 2006 Breska rokksveitin The Cribs, elektrópopp-rokkararnir í whomadewho frá Danmörku, hin bresk-íslenska The Fields, kanadíska Islands og Cold War Kids frá Kaliforníu hafa nú bæst við dagskrá tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves 2006. Auk þessara fimm erlendu hljómsveita bætast tíu íslenskir listamenn við dagskrá hátíðarinnar þar á meðal trúbadorinn Þórir eða My Summer as a Salvation Soldier eins og hann kallar sig á alþjóðavettvangi, teknó tröllið Thor, óþekktarormarnir Dr. Mister og Mr. Handsome, Tilraunaeldhús foringinn Kira Kira, Biogen, Worm is Green og Johnny Sexual. Iceland Airwaves 2006 fer fram í miðborg Reykjavíkur daganna 18.-22. október. Alls munu um 130 listamenn og hljómsveitir munu koma fram á hátíðinni - þar af yfir 100 innlendir. Enn geta íslenskir listamenn og hljómsveitir sótt um að koma fram á Iceland Airwaves 2006, en tekið verður við umsóknum fram til 10. júlí. Til að sækja um þarf að ná í sérstakt eyðublað á http://www.icelandairwaves.com sem finna má undir liðnum 'Industry', fylla út, prenta og skila til Hr. Örlygs, skipuleggjenda hátíðarinnar, ásamt fylgigögnum. Þau gögn sem fylgja skulu umsókn eru a) diskur með tónlist b) diskur með upplýsingatexta um flytjanda ásamt mynd. Hr. Örlygur leggur áherslu á að ekki er tekið við umsóknum eftir þann tíma. Bein slóð á eyðublaðið og frekari leiðbeiningar er að finna hér: http://www.icelandairwaves.com/page.asp?pageID=58 Framkvæmd Iceland Airwaves er í höndum Hr. Örlygs í samstarfi við Icelandair og Reykjarvíkurborg. Erlendu gestirnirMikið hefur verið fjallað um The Cribs (UK) í breskum fjölmiðlum undanfarið og nýlega breiðskífu sveitarinnar The New Fellas. Sveitin byrjaði árið á því að túra með Kaiser Chiefs um Bretland og við tók upphitunarpláss í tónleikaferðum Franz Ferdinand og Death Cab for Cutie um Bandaríkin og Kanada. Í sumar mun The Cribs spila á tónlistarhátíðunum Reading, Leeds og T In the Park í Bretlandi, Fuji Rock, Oxygen í Noregi og Siren í New York. Meðlimir sveitarinnar eru miklir mátar strákana í Kaiser Chiefs sem sögðu þeim að þeir yrðu að skella sér með þeim á Airwaves í haust! www.thecribs.comwww.myspace.com/thecribsÞað er erfitt að merkja Whomadewho einvherri ákveðinni tónlistarstefnu, en elektró-fönk skotinni rokktónlist sveitarinnar hefur m.a. verið líkt við Hot Chip og The Rapture. Fyrsta breiðskífa þeirra samnefnd sveitinni kom út í fyrra - og fékk góðar viðtökur í dönsku músík pressunni og náði einnig athygli utan landsteinana ("One of 2005's real finds" (NME). Whomadewhoe þykja flottir á tónleikum og munu einhverjir íslendingar geta sannreint það á Roskilde hátíðinni í ár.http://www.myspace.com/thecribswww.myspace.com/whomadewhomusicHljómsveitin Islands frá Montreal sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu, Return to the Sea, fyrir skemmstu hjá hinni virtu Rough Trade útgáfu. Á henni koma m.a. við sögu landar þeirra í The Arcade Fire og Wolf Parade - en síðarnefnda sveitin mun einnig spila á Airwaves í ár. Islands, sem sprottin er út úr hljómsveitinni The Unicorns, þykja hreint rosalegir á sviði og gerði mikla lukku á South by SouthWest hátíðinni í mars.www.islandsareforever.comwww.myspace.com/islandsareforeverÞrátt fyrir skamman líftíma hefur bresk-íslenska hljómsveitin The Fields, sem skipuð söngkonunni Þórunn Antoniu, þegar gert plötusamning við Atlantic Records. Fyrsti afrakstur hans, 4 From the Village EP, mun líta dagsins ljós 10. júlí. The Fields hafa verið upptekin við tónleikahald í Bretlandi síðustu vikur og mánuði þar sem bandið hitaði m.a. upp fyrir Snow Patrol á einum tónleikum. www.myspace.com/songsforthefieldsRokksveitin Cold War Kids, frá Fullerton, Kaliforníu,er band sem vert er að fylgjast með. Sveitin er þegar byrjuð að gera nokkurn usla í New York og verður gaman að sjá hvar hún verður stödd á ferlinum þegar hún kemur fram á Airwaves í haust.www.coldwarkids.com/www.myspace.com/coldwarkids
Lífið Menning Mest lesið Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Gagnrýni Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Lífið Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Lífið Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Lífið „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Lífið Stjörnum prýtt afmæli Nínu Lífið 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Lífið samstarf Þessi eru tilnefnd til Golden Globe-verðlauna Lífið Vilja minnka allt þetta neikvæða suð Menning Deila fyrstu myndunum af hvort öðru Lífið Fleiri fréttir Þessi eru tilnefnd til Golden Globe-verðlauna Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Stjörnum prýtt afmæli Nínu „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Deila fyrstu myndunum af hvort öðru „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Krakkatían: Borgari, bækur og aðfangadagur jóla Tommi Steindórs og Hrafnhildur trúlofuð Slagsmálin tengd hrósi, ekki framhjáhaldi Fékk veipeitrun Fréttatía vikunnar: Ofbeldi unglinga, Spotify wrapped og Kærleikskúlan Björk beinir skilaboðum til stjórnar RÚV Plötuðu Sigríði Andersen til að stíga í alvöru hundaskít Jólalegasti garðurinn í hverfinu og töff jólaskreytingar inni og úti „RÚV plís ekki vera gungur og aumingjar“ Kveður fasteignir fyrir kroppa Róandi skýjadansari er litur ársins 2026 Mortal Kombat-stjarna látin Hafði leitað árangurslaust að blóðföður sínum í áratugi Chanel og Snorri eiga von á syni Forritararnir borðuðu sveppina til að ná að vera aðeins lengur en hinir Stjórnmálamenn stigu trylltan dans í kjaftfullum Austurbæ „Ég er pínu meyr í dag“ Örlög Ísrael í Eurovision ráðast á aðalfundi sem hefst í dag Erum við of heimsk til að nota gervigreind? Þessi eru tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna Fannar leitaði lengi að transbrauði Sjá meira