Samstöðu- og styrktartónleikar fyrir konur í Palestínu
Á Grand rokk, fimmtudaginn 25. maí, kl. 21.00
Félagið Ísland-Palestína og UNIFEM á Íslandi standa fyrir samstöðu- og styrktartónleikum fyrir konur í hertekinni Palestínu fimmtudaginn 25. maí á Grand rokk, Smiðjustíg 6.
Tónleikarnir eru upphafið að söfnunarátaki þar sem allur ágóði rennur til palestínskra kvennasamtaka sem starfa á sviði mannúðar- og mannréttindarmála á herteknu svæðunum. Húsið opnar klukkan 21.00. Tónleikarnir hefjast 21.30. Aðgangseyrir er 500 krónur.
Fram koma: Reykjavík!, Future Future, Wulfgang, Seabear og Mr. Silla (spilar plötur)
Sérhannaðir bolir og peysur frá Dead og Nakta apanum verða til sölu á tónleikum, auk mynda gerða af Hugleiki Dagssyni. Einnig verða til sölu bolir, nælur og geisladiskar frá Félaginu Ísland-Palestína.
Ágóði af miðasölu og sölu á varningi rennur til palestínskra kvennasamtaka sem starfa á sviði mannúðar- og mannréttindarmála í hertekinni Palestínu - m.a. Bisan rannsóknar- og þróunarsetursins í Ramallah á Vesturbakkanum.
Liðsmenn Future Future hefur einnig verið duglegir við hljómleikahald undanfarið og gert það gott með laginu "Code Civil"sem náð hefur miklum vinsældum meðal hlustenda útvarpstöðvana XFM og X-ins.
Það sama má segja um lag rokksveitarinnar Wulfgang "Machinery" sem nú situr í efstu sætum X-listans og XDómínós vinsældarlista XFM.
Seabear hefur vakið verðskuldaða athygli undanfarið fyrir frumlegar lagasmíðar og skemmtilega tónleika. Sveitin hitaði fyrir New York bandið The Books í Berlín í febrúar og lék núna í maí í París á tónleikum með Apparat Organ Quartet og Benna Hemm Hemm. Seabear hefur meðal annars unnið sér það til frægðar að deila smáskífu með Grizzly Bear (Warp Records) - þar sem hvor hljómsveitin átti eitt lag á á sitthvorri hliðinni á 7" vinyl skífu sem Tomblab Records gaf út. Hún gaf nýlega út plötuna Singing Arc EP og sögusagnir eru uppi um að hin virta þýska plötuútgáfa Morr Music sé á höttunum eftir plötusamningi við bandið.
Söngkonan Mr. Silla vakti verðskuldaða athygli á síðustu Airwaves hátíð og hefur einnig gert það gott sem fjórðungur hljómsveitarinnar Fræ. Hún stóð sig frábærlega á síðustu samstöðutónleikum fyrir Palestínu á Grand rokk 29. nóvember, en að þessu mun hún hins vegar ekki spila "live" heldur leika eitthvað af sinni uppáhaldstónlist sem plötusnúður í upphafi kvölds og á milli atriða.